Bandamenn – karlar og baráttan gegn kynbundnu ofbeldi

Í lok febrúar héldu Stígamót námskeið fyrir karla sem vilja beita sér í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Megin tilgangur námskeiðsins var að þátttakendur myndu öðlast dýpri skilning á mikilvægum hugtökum og viðfangsefnum sem varða kynferðisofbeldi gegn konum. Einnig var tilgangurinn að skoða hvernig baráttan hefur þróast og hvaða hlutverk karlar hafa í baráttunni. Stefnt er að því að halda fleiri námskeið á næstu misserum. Í þessum fyrirlestri verður farið yfir helstu áherslurnar og velt vöngum yfir framhaldinu.

***

Stígamót eru grasrótarsamtök sem berjast gegn kynferðisofbeldi og veita aðstoð fyrir fólk sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi.

March 3 @ 16:00
16:00 — 16:45 (45′)

Stofa 303

Stígamót

Önnur dagskrá

Previous PostNext Post