Kona er nefnd LIVE

Hlaðvarpið Kona er nefnd byrjaði sumarið 2019 með það markmið að tala um konur og kynsegin fólk sem hefur oft verið skrifað út úr sögunni eða ekki fengið þá viðurkenningu sem þau eiga skilið. Þættirnir fjalla um allskonar konur og kynsegin fólk og hafa þær Silja Björk og Tinna meðal annars tekið viðtöl við Báru Halldórsdóttur aktívista, og Maríu og Ingileif hjá Hinseginleikanum. Hlaðvarpið hefur fengið frábærar móttökur og verður með „live“ upptöku á Kynjaþingi 2019.
Viðburðurinn er frá 14-15 í Aino Alto salnum í Norræna Húsinu. Vinsamlegast athugið að salurinn er lítill svo við mælum með að mæta snemma!
Þið finnið fyrri þætti Kona er nefnd á öllum helstu hlaðvarpsveitum, meðal annars Spotify.

November 2 @ 14:00
14:00 — 14:45 (45′)

Aino Alto

Kona er nefnd