Kynjaþingið er lýðræðislegur og femínískur vettvangur fyrir almenning. Dagskrá þingsins er skipulögð af félagasamtökum og hópum og hugmyndin er sú að auka samræður milli okkar sem er annt um jafnrétti í heiminum og gefa almenningi tækifæri til að kynnast því helsta sem er að gerast í femíniskri umræðu.
Kynjaþing er haldið í Veröld – hús Vigdísar, laugardaginn 13. maí kl. 13:00-17:00. Öllum viðburðum Kynjaþings er streymt.
#kynjaþing