Suðupottur Femínistafélags HÍ

Komum saman og ræðum femínísk málefni! Þátttakendum verður skipt í hópa sem munu fá fyrirfram ákveðnar spurningar til þess að ræða. Hóparnir reyna svo að komast að niðurstöðum sem verða kynntar hinum hópunum eftir umræðurnar. *** Femínistafélag Háskóla Íslands er þverpólitískt félag háskólanema sem vilja berjast fyrir jafnrétti kynjanna.
Read More
Rótin stendur að rannsókn á reynslu og upplifun kvenna af fíknimeðferð í samstarfi við Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar er að fá innsýn í reynslu kvenna af meðferðarúrræðum og upplýsingar um líðan þeirra og öryggi í meðferð. Enn fremur að skoða sögu kvennanna með sérstöku tilliti til erfiðrar upplifunar í æsku og...
Read More
Fulltrúar sjálfstæðiskvenna munu kynna starf flokksins, hvernig hægt er að taka þátt í flokksstarfi og segja frá fjölbreyttu starfi Landssambands sjálfstæðiskvenna. Félagið stendur fyrir margs konar fundum, heimsóknum og ferðum á hverju ári. Hlutverk sambandsins er að efla þátttöku kvenna í stjórnmálum, styrkja sambönd þeirra og auka þátt þeirra í starfi flokksins. *** Landssamband Sjálfstæðiskvenna...
Read More
Eruð þið sjúklega ástfangin eða “sjúk”lega ástfangin? Í febrúar fór fram átak á vegum Stígamóta undir heitinu Sjúk ást þar sem vakin var athygli á ofbeldi í unglingasamböndum og áhersla lögð á heilbrigð samskipti. Hér verður fjallað um þann raunveruleika sem við sjáum á Stígamótum sem ýtti okkur út í þetta átak, hvernig átakið fór...
Read More
Dögg Mósesdóttir fjallar um Doris film verkefnið sem er eftir sænskri fyrirmynd og fylgir sérstöku kvennamanifestói. Í kjölfarið verða sýndar tvær stuttmyndir sem spruttu úr verkefninu og hafa báðar hlotið tilnefningar til Edduverðlaunanna auk annara verðlauna. Sú fyrri er Munda sem er eftir handriti Bergþóru Snæbjörnsdóttur í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur með Guðrúnu Gísladóttur og Sigurði...
Read More
1 2 3