Kynlífsréttindaskráin – örnámskeið

Velkomin í örnámskeið Rótarinnar, laugardaginn 13. nóvember kl. 15:00 á Kynjaþingi.

Örnámskeiðið er sýnishorn úr námskeiðinu Konur finna styrk sinn (https://www.rotin.is/konur-finna-styrk-sinn/) sem ætlað er konum með áfallasögu og/eða vímuefnavanda.

Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, segir stuttlega frá námskeiðum Rótarinnar og svo ætlar Þórunn Sif Böðvarsdóttir, leiðbeinandi á námskeiðum Rótarinnar og ráðskona, að leiða okkur í í gegnum gerð kynlífsréttindaskrár.

Hvaða réttindi höfum við sem kynverur? Hvaða réttindi viljum við hafa? Þessu svarar hver og ein kona fyrir sig á örnámskeiðinu.

November 13 @ 15:00
15:00 — 15:45 (45′)

Ingibjargarstofa

Rótin