Samtvinnuð fjöldasamstaða

Fjöldasamstaða hefur verið undirstaða þess árangurs sem við höfum náð í jafnréttismálum á Íslandi. En hafa öll ávallt fundið sér samastað í fjöldanum?

Samtvinnun eða intersectionality er sífellt mikilvægara hugtak í femínismanum, sú hugmynd að í jafnréttisbaráttu sé grundvallaratriði að líta til hinna ólíku þátta sem leiða til misréttis. Til þess að ná kynjajafnrétti er nauðsynlegt að velta sér fyrir samtvinnun kynjajafnréttis við misrétti sem á grundvelli t.d. fötlunar, kynvitundar, stéttarstöðu, kynþáttar o.s.frv.

Hvernig náum við alvöru fjöldasamstöðu á Íslandi? Sæborg Ninja Urðardóttir, Tatjana Latinovic og Þorbera Fjölnisdóttir ræða málin á Kynjaþingi 2019. Svanhvít Ada Sif Björnsdóttir leiðir spjallið.

Sjáumst í Aino Aalto herberginu í Norræna húsinu kl. 15:00 laugardaginn 2. nóvember.

Að fundinum standa Kvennahreyfing ÖBÍ, Kvenréttindafélag Íslands og Trans Ísland.

November 2 @ 15:00
15:00 — 15:45 (45′)

Aino Alto

Kvennahreyfing ÖBÍ, Kvenréttindafélag Íslands, Trans Ísland